Criocabin Evolution
Evolution er líklegast flaggskipið í flota Criocabin, ef svo má að orði komast. Stórglæsilegt afgreiðlsuborð með endalausa möguleika, framleitt eftir óskum hvers og eins. Áberandi glæsileg hönnun og gríðarleg fjölbreytni einkenna þetta nýtískulega kæliborð. Þetta borð myndi sóma sér í hvaða verslun eða veitingahúsi sem er. Borðið heldur í þessar mjúku línur sem Criocabin hefur skapað sér nafn fyrir. Smelltu á myndina til að fá nánari upplýsingar um Evolution.