Kæliborð og hillukælar
Alkul ehf er umboðsaðili fyrir ítalska fyrirtækið Criocabin S.p.A. Fyrirtækið í fremstu röð í heiminum í hönnun og smíði afgreiðsluborða og hillukæla. Hér til vinstri eru upplýsingar um framleiðslulínu Criocabin og er hægt að nálgast þar myndir og upplýsingar í formi PDF. Margar gerðir af afgreiðsluborðum er hægt að fá sérsmíðuð efir málsetningu kaupanda.Vörur og þjónusta
Alkul ehf er umboðsaðili fyrir fjöldan allan af þekktum merkjum í kæli- og frystiiðnaðinum. Við höfum reynt að bjóða gæða vörur á hagstæðum verðum, þó oft sé erfitt að setja gæði og góð verð í sömu setninguna. Við höfum komið víða við í gegnum tíðina og í dag erum við til að mynda með umboð fyrir vinnulyftur, kamínur, ýmsan búnað fyrir húsbíla og margt fleira. Hér til vinstri er stiklað á stóru í vöruúrvali okkar en hafa ber í huga að listinn er langt frá því að vera tæmandi. Oftast er hægt að smella á viðkomandi vöru til að fá nánari upplýsingar en ef frekari upplýsingar er þörf eða verðtilboð óskast í einhverja af vörum okkar, þá skaltu hafa samband við sölumenn okkar í síma 577-6666
