Kælikerfi fyrir flutningabíla
Alkul ehf hefur sérhæft sig í sölu og þjónustu á kælikerfum fyrir allar gerðir flutningabíla. Okkar helsta merki í því er Thermo King, sem er líklegast stærsti framleiðandi af slíkum kerfum í heiminum. Innan fyrirtækisins er sér deild sem annast eingöngu þjónustu og sölu á kælibúnaði fyrir bíla og þjónum við stærstan hluta íslenska flutningabílaflotans. Hér til vinstri getur þú kynnt þér vörurnar frá Thermo King nánar eða haft samband við okkur og við ráðleggjum þér hvað hentar í þinn bíl.